r/Iceland • u/AutoModerator • 4d ago
Frjálst spjall á föstudegi - Friday free talk
Það er kominn föstudagur, yay!
Hugmyndin af þræðinum er að við höfum umræðuþráð sem er ekki fastur við einhverja frétt eða slíkt. þannig að hefur þú frá einhverju sniðugu sem gerðist í vikunni að segja, hvort að þið vitið af einhverju spennandi til að gera um helgina,einhverju sem liggur ykkur á hjarta eða bara hvað sem er.
Ekki vera indriðar, verum vinir.
---
English: Hey everyone,
The idea is to have a weekly thread where we can have a discussion free of any news related items or goings on, so what has happened to you this week? what are you looking forwards to? do you have something to say but no thread to post it to?
Don't be a dick, be kind.
r/Iceland • u/numix90 • 12h ago
Utanríkisráðherra kallaði sendiherra á fund vegna myndbirtingar Bandaríkjaforseta
r/Iceland • u/ungababunga • 19h ago
Mig vantar vistkerfisspeking
Ef að fræðilega viljinn væri fyrir hendi, væri þá hægt að flytja til Íslands íkorna og pokarottur þannig að þau yrðu partur af íslensku vistkerfi til frambúðar
forvitinn
edit: ég er ekki að kalla þetta góða hugmynd ég vildi bara vita hvort það væri fræðilegur
Þjóðaratkvæði til að útkljá mál?
Þú býrð með maka þínum í frekar flottu nútímalegu húsi. Heilt yfir eruð þið makinn þinn nokkuð ánægð með það, en það hefur myndast mygla víða. Myglan truflar þig ekki neitt (enda er hún í almennu rými en ekki þínu herbergi) en hún fer ferlega í taugarnar á maka þínum. Honum finnst óþægilegt að búa þarna.
Þú skilur ekkert í honum.
Þú hefur reynt ýmislegt til að losna við mygluna en ekkert hefur virkað í marga áratugi. Makinn þinn hefur mist trúnna og heldur því daglega fram að eina sem mun virka á mygluna sé að fá ytri stuðning, þ.e. kaupa loftræstikerfi og setja upp í húsinu. Þvílíkt rugl finnst þér. Þú veist sannarlega að það mun ekki virka og eiginlega þvert á móti myndi uppsetning á þessu lofræstikerfi gera marga eiginleika í húsinu verri.
En makinn gefur ekkert eftir. Hann segir þér að hann geti ekki búið í þessu húsi lengur og vilji borga 5.000kr til að hitta sérfræðinga í myglu og loftræstikerfum og eyða smá tíma með þeim að hanna kerfi sem hentar ykkar húsi. Bruðl á peningum finnst þér. Þrátt fyrir vera talinn mjög ríkur.
Þetta fer í taugarnar á þér. Þú veist að loftræstikerfi hjálpar ekki neitt og muni koma til með að kosta þig mjög mikið í rekstri og umsýslu. Síðan treystir þú eiginlega ekki maka þínum í þessu máli og treystir ALLS ekki þessum loftræstis-sölumönnum.
Þú ert heppinn því þú hefur 52.8% atkvæðavegi í þessu sambandi ykkar en makinn eingöngu 47.2%.
Þú hefur ýmsa möguleika. Einn er að láta undan þessari þráhyggju maka þíns, borga 5.000kr og setja smá tíma í að segja já til að sjá hvað þessir loftræstikallar segja. Þú veist það er tóm vitleysa og sóun á tíma og peningum sem væri betur varið í að gera hlutina sjálf/ur en ef þú færir þessa leið yrði maki þinn sátt/ur og þú gætir sýnt fram á undir lokin að auðvitað hjálpaði þetta rugl ekki neitt. Þú getur alltaf sagt nei síðar.
En þú ákveður frekar að að segja NEI strax. Málið verður ekki skoðað frekar. Þú ræður og þvertekur fyrir að fá nokkrar einustu upplýsingar um heimskuleg loftræstikerfi sem eiga að leysa mygluvandamál.
Þú segir nei og erf frekar sigurreif/ur. Þú ætlast til þess að nú sé þetta mál, og þar með öll umræða þar um, útaf borðinu. Þú villt ekki þurfa að heyra meira um það.
En þetta nei þitt var sjálfsmark.
Því þú tókst ekki á undirliggjandi ástæðu þessa rifrildis ykkar. Maki þinn er SANNFÆRÐUR um að þetta sé EINA LEIÐIN en þú lokaðir, þvermóðskulega, á að fá einu sinni að skoða þessa leið. Eina sem þetta áorkaði er að maki þinn missti smá trúnna á þér. Honum fannst þú gera lítið úr sinni upplifun, finnst þú vera þrjóskur, finnst þú vera stjórnsamur,, finnst þú nýskur, finnst þú sýna sér yfirlæti. Þú hefðir alltaf getað skoðað hvað var í boði og sagt síðan nei síðar meir.
Maki þinn er bæði svekktur og reiður og er örugglega að hugsa sína möguleika.
Einn möguleiki er að flytja frá þér. Flytja í ómyglað hús í öðru hverfi án þín.
Annar er að hann muni kúvenda sinni strategíu og finna upp nýjar og óþægilegar aðferðir til að nudda þér upp úr afhverju þér hefur aldrei tekist að laga þessa myglu sjálf/ur. Svona fyrst þú veist allt best.
Eitt er víst. Með því að neita að skoða möguleikann sem maki þinn var sannfærður um að væri eina leiðin til að laga vandamálið, án þess að fá upplýsingar sem hrekja grunnrök hans. Þar hefur þú tryggt þér að hann mun halda áfram að tuða um þetta helv**** loftræstikerfi, og hversu frábært það yrði, daglega næstu 20 árin.
Nei-ið þitt tók málið alls ekki af borðinu. Þvert á móti setti það það á óræða dagskrá inn í framtíðina.
r/Iceland • u/Auron-Hyson • 1d ago
Meirapróf D réttindi
Góðan dag elsku fólk á reddit, ég er með D1 réttindi til að keyra litlar rútur og er með fína fasta vinnu en er farið að langa að fá D réttindi líka til að fá að keyra stærri rútur, er það þess virði vinnulega séð og hvar er þá mesti peningurinn? er þá aðallega að spá í það hvort að ég eigi að hætta í vinnunni sem ég er með þegar ég er kominn með þau réttindi eða er meira vit í því að taka stóru rútuna sem auka vinnu á sumrin? 😁
ég þakka fyrir öll svör og sjónarhorn 😜
r/Iceland • u/Oktopuzzy • 2d ago
Nú eru góð ráð dýr.
Ég er með verkefni í gangi þar sem ég smíða vinnuborð, trönur og fleira fyrir fötluð börn og gef þeim. Ég á eina Skrúfvél og sög sem ég nota í þetta (og leyfi þeim stundum að nota!) velin mín er Milwaukee m18 með einni rafhlöðu og hleðslutækið gaf sig. Ég á ekki fyrir nýju 20.000kr hleðslutæki. Er einhver hér sem gæti átt eitt slíkt og er til í að láta frá sér á sanngjörnu verði?
Edit: ef einhver vill leggja málinu líð á einhvern hátt er ég gríðarlegur þakklátur.’ Allt smiðatengt hjálpar þar sem þetta kemur allt úr eigin buddu og ég er
Duglegur að gera krökkum verkfæri sem þau ráða við.
r/Iceland • u/onepiecemovement • 2d ago
Fjölmiðlar eru ekki lengur fjórða valdið heldur að mestu leyti málpípur hagsmunaaðila
Ég rak augun í athugasemd á Facebook frá Birni Leví sem fékk mig til að hugsa, og ég vona að ég megi deila henni hér. Ég reyndi eftir fremsta megni að umorða þetta sjálfur en tókst það ekki, þar sem þessi athugasemd kjarnaði allt svo vel. Ég hafði í raun ekki pælt mikið í þessu fyrr en ég las hana.
,,Ekki óskiljanlegan. Þetta er einföld afleiðing af því að pólitísk orðræða trompar málefnalega umræðu, að fjölmiðlar eru ekki lengur fimmta valdið heldur að mestu leyti málpípur hagsmunaaðila, ... Þetta er afleiðing þess að valdhafar hafa fengið að komast upp með ýmislegt sem almennir borgarar komast ekki upp með. Halda partý í Covid, selja pabba sínum hlut í ríkisbanka, kaupa fasteignir í heildsölu í hruninu, Icesave, útrásin, skattaskjól, fishrot, ... og pólitískur ómöguleiki þess að fara eftir lýðræðislegum loforðum og niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslu. Það þarf meira til. Það þarf ábyrgð. En hvernig er hægt að nálgast ábyrgð þegar það er enginn áhugi hjá ýmsum pólitískum öflum til þess að sýna ábyrgð? Þegar það er ekkert aðhald gagnvart valdinu frá fjölmiðlum af því að það er búið að steingelda traust þeirra líka. Ég er ekki með lausn á þessu. Það virkaði ekki að opinbera allt kjaftæðið. Þegar bent var á spillinguna þá var sendiboðinn skotinn í staðinn fyrir að horfast í augu við vandann. "
Við þetta vil ég svo bæta að Björn dregur fram að staðan í stjórnmálum er ekki afleiðing af handahófskenndri óreiðu, heldur af kerfisbundnum atburðum og strúktúr sem hefur mótast yfir löngu tímabili. Þetta má með réttu kalla uppsafnaða traustskreppu. Listinn yfir dæmin Covid partý án afleiðinga, spillt bankasala, skattaskjól í Panama/Wintris, efnahagshrunið, Samherjamálið/fishrot, Icesave, Lindarhvoll málið, njósnirinar, pólitískar ofsóknir gagnvart fólki eins og Semu Erlu þar sem dómsmálaráðuneytið var misnotað, virðingarleysi við niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá og stjórnlagaferlið, ásamt endalausum dæmum um þögul samráð olíufélaga og matvörurisanna og fleiri risa án afleiðinga þar sem samkeppni er kæfð í þágu hagsmunaaðila, ásamt því hvernig almenningssamgöngur milli Keflavíkur og Reykjavíkur hafa verið kæfðar árum saman í þágu sérhagsmuna eins og einkafyrirtækja tengdra Bjarna Benediktssyni á borð við Kynnisferðir og fleiri sem svæft hafa hugmyndir um stórbættar almenningssamgöngursýnir, allt hvers vegna almenningur upplifir gríðarlegt misræmi milli ábyrgðar valdhafa og almennra borgara. Þegar stór mál passera án afgerandi afleiðinga rýrir það trú fólks á að kerfið sé réttvisandi.
Algjört aðhaldsleysi ríkir í samfélaginu og staða fjölmiðla er mjög slæm. Breytt eignarhald, fjárhagslegur þrýstingur og hliðrun fréttaflutnings yfir á samfélagsmiðla hafa veikt stöðu þeirra sem virks fjórða valds. Ástandið sem við búum við er því kannski ekkert óeðlilegt þegar traustið á milli valdhafa og almennings er orðið svona stóralvarlega brotið. Þróunin er rökrétt, Þegar traust á stofnunum og miðlum minnkar, verður pólitísk orðræða skautaðri og málefnaleg umræða víkur fyrir spunatækni og átakastjórnmálum.
r/Iceland • u/MusicalBox • 3d ago
Veit einhver hvort finna megi Kasoori Methi (þurrkuð fenugreek lauf) hér á landi?
Er að reyna að taka indversku eldamennskuna á næsta level og þetta er lykilhráefni í mörgum réttum.
Er búinn að kíkja í Istanbul Market og Fiska en þau eru bara með fenugreek fræ og duft sem eru mulin fræ.
r/Iceland • u/Einn1Tveir2 • 3d ago
Eitt stærsta skattamál Íslandssögunnar: Bílaleigur gætu þurft að greiða allt að 25 milljarða
r/Iceland • u/gerningur • 3d ago
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ - Vísir
r/Iceland • u/Alos3101 • 3d ago
What is the best way to send money from Icelandic account (personally using Landsbankinn) to Revolut or any other account outside Iceland, to pay as little as possible when converting currencies and making foreign transfers.
r/Iceland • u/No_Information1234 • 4d ago
Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru
Þetta er hámark ruglsins. Ríkisstofnanir kaupa af Santé. Ef það segir ekki allt um ruglið þá veit ég ekki hvað.
Hvað ætli hafi gerst hjá Framkvmdasýslunni? Ég ímynda mér að einhver hafi keypt áfengið, svo hafi einhver fattað að þetta væri alls ekki sniðugt og enginn geta tekið ákvörðun um að borga reikninginn fyrr en hann var kominn í innheimtu hjá lögfræðingi
r/Iceland • u/polguyork • 4d ago
Er þetta ekki fullmikið?
Er ekki smá útlendingahatur þarna á ferð? Hvert á að “reporta” mann? Fullt af störfum sem láta gott liggja að setja required á íslensku. Í rauninni ekki fullt af störfum heldur bókstaflega öll önnur störf láta það duga. Er ég að missa af einhverjum mikilvægum punkt?
r/Iceland • u/Vontenvenst • 4d ago
Með þessu frumvarpi getur löggan brotist inn til þín án þess að fá dómsúrskurð um slíkt og rænt þig og sett þig í gæsluvarðhald mánuðum saman.
https://samradapi.island.is/api/Documents/8e362640-e8a6-f111-9bdf-005056bcce7e
Þetta er nú aldeilis frábært frumvarp.
Gott að ofbeldismenn/löggan geti farið að brjótast inn til fólks án þess að fá dómsheimild.
Gott að ofbeldismenn/löggan geti bara sett upp myndavélar þar sem þeim sýnist.
Ennþá betra að nú getur eitthver frændi sem á fullt af peningum farið í samstarf við lögguna um að setja upp eftirlitsbúnað.
Algjör snilld að löggan geti bókstaflega rænt eigum þínum verði þetta frumvarp að lögum.
Frábært að alið sé á ótta og kryddað með smá 'til að vernda börnin' áróðri í þessu frumvarpi.
Allra best er að lögreglan hefur ekkert skilvirkt innra eftirlit eða óhlutdrægt eftirlit með sér.
Þetta frumvarp ásamt lögum sem sett voru fyrir nokkrum árum þar sem ekki þarf lengur rökstuddan grun um að hefja rannsókn á fólki á alls ekki eftir að verða eitraður kokteill.
Það eru nú auðvitað engin dæmi um að lögreglan fari offorsi eða geri greinarmun á milli fólks eftir stétt, skoðunum eða uppruna. Aldrei gerist það að lögreglumaður verði uppvís um hrottalegt ofbeldi og er ekki strax rekinn og ákærður. Aldrei er lögreglufólk að merkja búninga sína með merkjum frá haturs og glæpasamtökum, þannig þetta á allt eftir að fara vel.
Þetta reddast, er það ekki?
Mundu, ef þú ert á móti þessum breytingum þá ertu annað hvort glæpamaður eða hatar börn.
r/Iceland • u/finnur7527 • 4d ago
Stærðarinnar borgarísjakar við Hraun á Skaga - RÚV.is
Það er langt síðan ég hef séð jafn töfrandi myndir frá Íslandi eins og þær sem fylgja þessari frétt.
Ef þið munið eftir álíka ævintýralegum eða stórbrotnum myndum þá hvet ég ykkur til að deila :)
r/Iceland • u/abradolf_lincler_jr • 4d ago
Ertu reiður eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna? Þingkosningar nálgast.
Ertu reið / reiður eða mótiveruð / mótiveraður eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna og niðurstöður hennar?
Það eru þingkosningar eftir tvö ár eða haustið / lok árs 2028, bara svona 16 mánuðir í undirbúning kosningabaráttu. Verður fljótt að líða.
Hér eru stór kosningamál sem líklega verður barist um - og verða örugglega líka til umræðu á alþingi í vetur og næsta vetur:
- EES samningurinn og bókun 35 - þetta er grundvallaratriði fyrir gildi og áhrif EES samningsins, tengsl Íslands við ESB og Evrópu. XM mun gera allt til þess að stoppa þetta. Hluti af XD líka eftir að Þórdís Kolbrún, Áslaug ofl. eru hætt. Atkvæði gegn bókun 35 er atkvæði gegn Evrópu, og atkvæði með BNA og Trumpisma/MÍGA.
- Eign og notkun auðlinda - veiðigjöld hertóku alþingi í fyrra. Hækkun átti að eyðileggja sjávarútvegsfyrirtækin. Hvað gerðist? Nákvæmlega ekkert, methagnaðurinn heldur áfram. Ríkið og þjóðin á að fá sanngjarnan hlut fyrir notkun fyrirtækja á þjóðarauðlindum. Það þarf að setja auðlindaákvæði í stjórnarskrá - tillögu að stjórnarskrárbreytingu fyrir næstu kosningar og þingmeirihluta til að staðfesta þær eftir kosningar 2028.
- Jafnt atkvæðavægi í þingkosningum - af hverju ætti atkvæði einhvers á Snæfellsnesi telja næstum því tvöfalt meira en atkvæði þitt sem býrð í borginni? Þetta þarfnast líka stjórnarskrárbreytingar og þingmeirihluti til að staðfesta breytinguna eftir kosningar 2028.
- Niðurskurður og skattalækkanir fyrir þá ríku - tillögur flokksráðs Sjálfstæðisflokksins frá því í vor fjölluðu um 160 milljarða króna niðurskurð á velferðarkerfinu og 140 milljarða króna skattalækkanir.
- Afnám verðtryggingar - verðtryggingin nýtist eignafólki en er skattlagning á skuldara og eignaminni. Hugsaðu aðeins um verðtrygginguna - er eðlilegt að fyrirtæki sem er á móti þér í leigu eða lánasamningi, geti velt allri áhættunni yfir á þig með því að verðið í samningnum hækki sjálfkrafa? Þetta þekkist ekki á neytendamörkuðum annars staðar.
- Hvernig er hægt að minnka völd stórfyrirtækja og draga úr getu þeirra til þess að hækka verð? Bankar, tryggingar, dagvörur, eldsneyti. Þetta eru markaðir þar sem verð hækka sjálfkrafa og fyrirtækin þurfa ekki að saxa á markaðshlutdeild hvors annars, og varla að taka tillit til neytenda. Svo safnast eignarhlutirnir í þessum fyrirtækjum á örfáar hendur eignarhaldsfélaga og sjávarútvegsfyrirtækja. Lífeyrissjóðir eiga stóra hluti líka - en stjórnendur þeirra eru bankakallar - fólk á lífeyrissjóðina en ræður engu um.
- Afnám verndartolla - það ríkja háir tollar á innflutning matvæla og landbúnaðarafurða til Íslands. Líka eru gefnir eru út tollkvótar sem leyfa innflutning á kjöti, en fyrirtæki eins og Kaupfélag Skagfirðinga kaupir upp innflutningskvótanna svo aðrir geti ekki nýtt þá. Á sama tíma rekur KS sláturhús og framleiðir kjöt.
Ef þú ert mótiveraður / mótiveruð eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna, hugsaðu hvernig þú getur látið til þín taka næstu tvö ár og líka í kosningabaráttunni 2028.
Byrjaðu á að til dæmis skrá þig í local félag þess flokks sem þú aðhyllist, t.d. félag flokks X í Reykjavík, Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ etc. Mættu á landsþing flokksins og reglulega fundi ef þú getur.
Hér er ný áhugaverð grein eftir fyrrum formann XD og einn stofnanda Viðreisnar - um stór pólitísk mál að hans mati eftir niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar:
r/Iceland • u/Skyjaglopurinn • 4d ago
Má ekki bjóða fólki eina lauflétta mixtúru?
Ég var að gefa út þessa smáskífu um daginn
Þetta er svona old school/new school boom bap/trap mixtúra og svo er Seppi úr Afkvæmum Guðanna með spikað gestaspott á lokalaginu
Taktarnir eru allir gerðir af pródúser sem kallar sig Docent en hann hefur td. gert tónlist með Ray Vaughn og Isaiah Rashad sem eru báðir á TDE (sama label og Kendrick Lamar var á)
Endilega tjekkið á þessu og deilið þessu með hipphopp hausum í kringum ykkur
r/Iceland • u/Equivalent_Day_4078 • 5d ago
ESB ESB-kosningin: Strjálbýlishægrið og Framsókn átta sig ekki á púðurtunnunni sem þau voru að sprengja. Upphaf borgaralega hægrisins.
Ég held að eitt af því áhugaverðasta við niðurstöðuna sé eitthvað sem andstæðingar ESB virðast ekki alveg vera búnir að átta sig á. Það eru í grunninn tveir stórir flokkar sem hafa borið uppi ESB-jákvæðu línuna, Samfylkingin og Viðreisn.
Ég er krati. Fyrir mig og fólk eins og mig skapar þessi niðurstaða enga sérstaka tilvistarkreppu. Samfylkingin er breiðfylking krata og jafnaðarmanna og hefur heila hugmyndafræði, sögu og tilverurétt utan Evrópumála. ESB er stórt mál fyrir flokkinn, en flokkurinn hættir ekkert að eiga erindi þótt Evrópumálið sé sett til hliðar.
Viðreisn er í miklu áhugaverðari stöðu. Því hvað verður um Viðreisn ef Evrópumálið er tekið af borðinu næstu árin? Það er nefnilega stórt pólitískt gat á Íslandi sem enginn flokkur fyllir almennilega: hægrisinnaður flokkur sem setur hagsmuni borgarbúa og þéttbýlis fram yfir hagsmuni dreifbýlis.
Það er enginn „and-Framsóknarflokkur“.
Framsókn hefur í áratugi getað verið mjög skilvirkur hagsmunagæsluflokkur fyrir landsbyggðina. Landbúnaður, styrkjakerfi, tollvernd og byggðastefna eiga sér mjög skýra pólitíska rödd. Hvar er samsvarandi rödd fyrir hægrisinnaðan Reykvíking sem spyr einfaldlega: af hverju í fjandanum á ég að borga meira fyrir mat til þess að vernda ákveðna atvinnugrein úti á landi? Þessi kjósandi er til. Og ég held að hann gæti orðið töluvert reiðari eftir þessa kosningu.
Það sést meira að segja nú þegar í ESB-jákvæðum umræðum. Fólk er bókstaflega farið að tala um að sniðganga íslenskar landbúnaðarvörur. Það er hefndarhugur í fólki. Ekki bara „æ, leiðinlegt að við töpuðum“, heldur tilfinning um að dreifbýlishagsmunir hafi enn einu sinni lokað á eitthvað sem stór hluti borgarbúa vildi að minnsta kosti fá að kanna til enda.
Og hér finnst mér mikilvægt að setja einn fyrirvara. Þessi púðurtunna væri miklu minni ef niðurstaðan hefði verið já við viðræðum, við hefðum fengið samninginn upp á borðið, séð nákvæmlega hvað Íslandi stæði til boða og þjóðin síðan hafnað honum. Ég held að miklu fleiri ESB-sinnar hefðu getað sætt sig við það. Þá hefðum við fengið upplýsingarnar, fengið niðurstöðu og tekið ákvörðun.
En það gerðist ekki. Við kusum nei við því að hefja viðræðurnar aftur. Og þegar fólk upplifir að umræðan hafi verið kæfð áður en það fékk einu sinni að sjá hvað raunverulega væri í boði, þá hverfur sú pólitíska orka ekkert endilega. Hún getur breyst í biturð.
Þess vegna held ég að hægrið í dreifbýlinu ætti að passa sig aðeins á því hvað það óskar sér. Segjum að Viðreisn, eða einhver framtíðarflokkur sem sprettur úr sama kjósendahópi, ákveði að hætta að eyða pólitísku púðri í ESB og geri í staðinn hægristefnu fyrir borgarbúa að sínu aðalmáli. Ekki lengur ESB heldur bara hreina hagsmunagæslu fyrir neytendur og þéttbýli.
Algjört tollfrelsi á landbúnaðarvörum og afnám styrkjakerfisins eru fyrstu hlutir sem mér dettur í hug.
Hagsmunir borgarbúa verða settir markvisst gegn hagsmunum dreifbýlis þegar þeir rekast á.
Þá held ég að íslenskur landbúnaður gæti lent í miklu verri pólitískri stöðu en hann hefði nokkurn tímann lent í innan ESB.
Bændur hefðu allavega átt möguleika á styrkjakerfi innan ESB og pólitískri málamiðlun um sérstöðu íslensks landbúnaðar. Þeir eiga miklu minni möguleika ef upp úr þessari kosningu rís einhver pólitískur uppvakningur sem hefur það beinlínis á stefnuskránni að borgarbúar eigi ekki lengur að borga reikninginn fyrir dreifbýlisstefnu.
Og áður en einhver segir að þetta sé öfgakennt: já, þetta er öfgakennd pólitík. Það er einmitt punkturinn. Langvarandi pólitísk útilokun getur búið til nákvæmlega svona pólitík.
Framsókn hefur fullan rétt á því að vera rödd landsbyggðarinnar. Bændur hafa fullan rétt á því að berjast fyrir sínum hagsmunum.
En þá getur enginn orðið hissa ef á endanum verður til flokkur sem segir: fínt, við ætlum þá að berjast jafn miskunnarlaust fyrir okkar hagsmunum.
Mér finnst menn vera full rólegir yfir því að 47,2% þjóðarinnar kusu með viðræðum og að Reykjavík hafi verið mun jákvæðari en landsbyggðin. Það fólk gufar ekkert upp.
Spurningin er bara hvert þessi pólitíska orka fer næst. Kannski var þetta endirinn á ESB-umræðunni í bili. En þetta gæti líka hafa verið upphafið að einhverju miklu óþægilegra fyrir Framsókn og íslenskan landbúnað:
Miskunnarlaust hægrisinnað borgarafl.
r/Iceland • u/MuscatPepper • 5d ago
Þörf á aksturforvörnum sem sýna kaldan raunveruleikann.
Ég var með þráð sem ég birti fyrir fjórum mánuðum, en í kjölfar þessa hörmulega slys sem er á allra vörum í dag vildi ég en og aftur vekja athygli á þörfinni á öðruvísi nálgun akstursforvarna. Lögreglan óttast nýtt trend sem er í gangi. Þá langar mig að vekja upp umræður um þörf fyrir alvöru auglýsingaherferð þar sem krökkunum er sýndur kaldur raunveruleikinn og alvarleika þess að keyra eins og fífl.
Þessi auglýsing vekur frekar upp hlátur en að krakkarnir gera sér grein fyrir alvarleika málsins að þú getur drepið þig og aðra, og ef þú ert heppinn orðið alvarlega fatlaður ef þú keyrir ekki eins og maður. Það þarf að hætta að koma fram við börn og unglinga eins og einhverjar krúsídúllur sem mega ekkert slæmt sjá.
r/Iceland • u/TheUpgradeParty • 5d ago
Kosningarnar, "Flood the Zone“ tæknin og lygarnar sem breyttu umræðunni
Ég hef verið að lesa á öðrum þráðum hér á Reddit að r/Iceland sé svo tapsárt yfir niðurstöðum kosninganna og að allir hér inni séu bara að downvota þá sem gagnrýna JÁ hliðina.
Mér finnst samt alveg réttmæt ástæða til þess að margir hér séu frekar skeptískir á þetta allt saman, miðað við áróðurinn og lygarnar sem NEI hliðinn héldu úti og mér finnst alveg í lagi að spyrja spurning aeins og "hvað ef þessar lygar hefðu ekki verið haldnar fram, hvernig hefði niðurstaðan orðið þá?" Þetta voru ekki bara stakar lygar, heldur víðtæk áróðursherferð, augljóslega vel skipulögð, þar sem beitt var tækni á borð við „flood the zone with shit“. Niðurstöður margra í samfélaginu var hvað allt var óskiljanlegt og í rugli og það er var bara augljóst að Áfram Ísland og þeir helstu stjórnmálamenn sem hlyntust Nei voru að fylgja einmitt "flood the zone" tækninni, þannig var það sem sem Mr. Bully og Brexit folkið gengu svona vel í þeirra kosningum. Hvernig vitum við það virkaði? vegna þess að fólk er einhvern veginn að kenna báðum hliðum um þegar þetta voru helst nei sinnar að koma með nýjar rökræður alls staðar, og já sinnar að reyna að útskýra að rangupplýsingarnar væru ekki réttar. Líkt og með þarna úti, er niðurstaðan bara sú að enginn treysti neinum upplýsingum lengur. Hvort sem þær eru réttar eða rangar.
Ég er samt ekki að segja að allir sem kusu NEI hafi verið hluti af einhverjum peningaöflum eða valdaelítunni, eða séu heimskir, alls ekki. Sumir höfðu einfaldlega góðar ástæður fyrir því að segja NEI og það er alveg gott og gilt og gáfu bara mjög góð rök fyrir því. Sumir eru bara alls ekki hrifnir af ESB, og það voru oft bestu rökin sem ég heyrði gegn því að segja JÁ og aðrir voru einfaldlega bara hræddir við breytingar og ég skil það bara svo vel. En við skulum samt ekki vera barnaleg og horfa fram hjá öllum lygunum sem fengu marga til að skipta úr JÁ yfir í NEI. Ég þekki nokkra einstaklinga sem ætluðu alltaf að segja JÁ við því að fá að sjá samning, en voru allt í einu komnir á NEI-hliðina vegna þess að þeir trúðu ósannindum NEI-sinna.
Ég fæ að láni texta frá einum sem birti færslu um hvaða lygar NEI hreyfingin hélt fram, og þetta er ekki tæmandi listi. Hér kemur endurbirt færsla af Facebook:
"Lygalistinn er býsna langur og hér er samantekt sem orðið hefur til í meðförum margra, og fullvíst er að listinn er ekki tæmandi.
- ESB-"herinn" mun senda ungu mennina okkar á vígvöllinn.
- Brussel ætlar að yfirtaka allan fiskinn og deila honum á aðildarlöndin.
- Öll stærri fyrirtæki í sjávarútvegi verða seld úr landi.
- Landbúnaði verður eytt á Íslandi með gríðarlegum innflutningi matvara.
- Öll nýsköpun á Íslandi verður kæfð í fæðingu.
- ESB hirðir 50 milljarða árlega í skatt.
- Lífeyrissjóðunum okkur verður stolið og lífeyrisþegar skildir eftir í bullandi vandræðum.
- Unga fólkið mun eiga í meiri vandræðum með að eignast húsnæði.
- Matarkarfan mun hækka í verði.
- Laun almennings munu fara lækkandi.
- Vextir fara ekki lækkandi með upptöku Evru.
- Verðtrygging leggst ekki af með evru frekar en með krónu.
- Landamærin verða galopnuð og stjórnlaus.
- Ströng fyrirmæli verða um móttöku miklu fleiri flóttamanna.
- ESB mun leggja sæstreng til að ræna okkur allri raforku.
- Verð á raforku innanlands mun hækka upp úr öllu valdi.
- Dómsvald á Íslandi flyst til Brussel.
- Löggjafarvald á Íslandi flyst til Brussel.
- ESB slekkur á öllu rafmagni til heimilanna frá maí og fram á haust.
- ESB mun láta Ísland greiða fyrir inngöngu Svartfjallalands.
- Vinnumarkaðslíkani ESB landanna verður þröngvað upp á Íslendinga.
- Ísland mun tapa öllum sínum auðlindum í hafi og á landi.
- Ísland mun drukkna í pappír og tilskipunum frá Brussel."
Við þetta vil ég bæta
NEI hreyfingin var að hringja í stráka, 18 ára og eldri, og halda því fram við þá að það ætti að senda þá í ESB-herinn (sem nota bene eru helberar lygar, því það er enginn ESB her og verður enginn ESB her).. Ef engum af þessum lygum sem haldið var uppi fyrir kosningar hefði verið dreift, og niðurstaðan hefði samt verið NEI, þá hefði ég sofið róleg. En ég get alls ekki sofið róleg yfir þessu. Nú hefur tónninn verið gefinn og peningaöflunum ljóst hversu auðvelt er að vinna kosningar í framtíðinni með þessum hætti. Það er strax farið að undirbúa að setja EES-samninginn í uppnám, og þeim mun takast það ef þau ætla sér það. Ef EES skarast á við hagsmuni sægreifanna, peningaaflanna og auðmanna, þá er ekki hægt að útiloka að einhverjir muni leggja EES-exit á borðið. Og ef sömu taktik var beitt og fyrir þessar kosningar þá mun þeim takast það
Það þarf að finna íslensk heiti yfir 'Gish Gallop' og 'Flood the zone with shit/firehose of falsehood' svo hægt sé að koma þessum hugtökum inn í íslenska umræðu og finna gegn þeim eitthvert mótefni.
