r/Iceland • u/ungababunga • 22h ago
Mig vantar vistkerfisspeking
Ef að fræðilega viljinn væri fyrir hendi, væri þá hægt að flytja til Íslands íkorna og pokarottur þannig að þau yrðu partur af íslensku vistkerfi til frambúðar
forvitinn
edit: ég er ekki að kalla þetta góða hugmynd ég vildi bara vita hvort það væri fræðilegur
•
u/82c1769777ef004df490 22h ago
Trjáíkornar éta aðalega hnetur. Hræddur um að þeir hefðu ekki mikið að éta hérna.
Plís ekki reyna að bæta við fleiri ágengum innrásartegundum við Íslenska náttúru
•
u/KristinnK LEGO karl í dulgervi 3h ago
Trjáíkornar éta aðalega hnetur. Hræddur um að þeir hefðu ekki mikið að éta hérna.
Það er ekki rétt. Uppistaðan í fæði evrópska íkornans eru trjáfræ. Og hann borðar líka ber, sveppi, brum og flest annað ætilegt.
Varðandi það hvort íkornar gætu myndað stöðugan stofn hér á landi þá veltur það á nógu stóru samfelldu vistkerfi. Sú tala sem oftast er nefnd í því samhengi er 200 hektarar skóglendis. Líklega gæti íkorninn viðhaldið sér á eitthvað smærra svæði, sérstaklega á kjörlendi sínu sem eru barrskógar, en ef við tökum þetta 200 hektara viðmið þá væri Hallormsstaðaskógur líklega eini staðurinn á Íslandi þar sem íkornar væru 100% öryggir um að geta lifað. Skógurinn er 740 hektarar, og þar af eru um 300 hektarar barrskógar.
Íkorninn gæti líka hugsanlega lifað í Kjarnaskógi og í Heiðmörk. Þau svæði eru enn stærri en Hallormsstaðaskógur, en ekki jafn samfellt vaxin skógi, svo ég þori ekki að fullyrða um þau. Þó kemur það sérstaklega fram þegar fjallað er um lágmarksstærð skóglendis til að bera íkornastofna að skóglendi þurfi ekki endilega að vera samfellt, það er nóg að aðlæg skógsvæði tengist, þá geti þau virkað sem ein heild, þannig ef til stæði að reyna að bæta íkornum við fánu Íslands þá myndi alveg borga sig að reyna bæði svæðin.
•
u/rockingthehouse hýr á brá 22h ago
Spurning, af hverju? Pokarottur eru reyndar eitt af mínum uppáhalds vesalingum sem finnast úti í BNA en ég held að þær mundu ekki hafa það mjög notalegt í íslenskri náttúru. Það er ekki nóg af stórum pöddum, engir froskar, snákar eða villtir ávextir og hnetur í boði svo það væri bara matarafgangar í rusli mannfólks fyrir þær
•
u/StarPlatinumIII 17h ago
Það væri góð leið til að losna við pöddurnar... en í leiðinni þyrftum við að flytja inn snáka til að halda íkornastofninum niðri.
•
•
•
u/Don_Ozwald Aðdáendaklúbbur Ástþórs Magnússonar 15h ago
Af hverju ertu ekki að spá í þvottabjörnum?
•
u/lukkutroll 14h ago
Það gekk ekki áður, afhverju ætti það að ganga núna?
•
u/Don_Ozwald Aðdáendaklúbbur Ástþórs Magnússonar 14h ago
Nú!? Hverju missti ég af?
•
u/lukkutroll 14h ago
•
u/YourFaceIsMelting landvættur 10h ago
Tja ef við getum hamið okkur um það að skjóta þá, myndu þeir þá ekki hafa það fínt hérna?
•
u/Don_Ozwald Aðdáendaklúbbur Ástþórs Magnússonar 14h ago edited 14h ago
hear me out. Úlfaldar. Á sprengisandi! Það yrði eitthvað!
Edit: grínlaust, það gæti gengið. Ekki þessi afrísku heldur asíska tegund sem er með tvo hnúfa. Kameldýr er held ég það sem þau kallast. Sú tegund gæti actually lifað af. Og blómstrað á Íslandi.
•
u/lukkutroll 14h ago
Þessi dýr þurfa hluti sem ekki finnast hér. Hreindýr varla þrauka og ekki væri fyrir skytturnar myndu þau öll hverfa. Minkurinn komst af stað og allir svo ánægðir með og kominn í þokkalegt jafnvægi í dag. Málið er að Ísland er lítil eyja útí rassgati þar sem lítið vex og hitastig verulega óáreiðanlegt. Sauðnaut náðu ekki einu sinni að þrauka. Mögulega er eitt og annað sem gæti þraukað líkt og kragamús en hver værí ávinningurinn á móti áhættunni? Til hvers að fá íkorna og pokarottur?
•
•
u/Thebiggestyellowdog 15h ago
Mátt senda mér skilaboð um þetta, en það eru ekki til "niche" fyrir þau. Það er ekkert skref eða pláss í íslenska vistkerfinu sem hentar.
•
•
u/YourFaceIsMelting landvættur 21h ago
Allt er mögulegt, ég flutti inn lúsmý og moskító.