r/klakinn • u/possiblyperhaps • 13h ago
r/klakinn • u/possiblyperhaps • Oct 29 '24
Svikul tálsýn Áminning um reglur á r/klakinn
Í ljósi fjölda innleggja um stjórnmál og önnur leiðindamál er rétt að áminna landsmenn um reglurnar á r/klakinn.
Menn myndu halda að hið alvarlegasta reglubrot væri að brúka dönsku í athugasemdunum. En nei, annað sem er jafn alvarlegt; að vera með leiðindi, uppnefni, nöldur og argaþras um eitthvað djöfulsins kjaftæði.
Vegna komandi alþingiskosninga og ekki síður vegna umdeildra stjórnarhátta á r/iceland hefur ríkt undanlátssemi á klakanum fyrir alls konar vitleysu. En hingað og ekki lengra, þetta er orðið að einhverri vitleysu. Nú verða engin vetlingatök og reglubrjótum verður ekki sýnd nein miskun.
Menn hafa ekki verið bannaðir á klakanum nema í undantekningartilfellum. Þess í stað verða notendanöfn skráð í svarta bók ásamt ítarlegri lýsingu á þeirri andfélagslegu háttsemi sem hefur átt sér stað. Í árslok verður bókinni skilað til varðveislu á Þjóðskjalasafni svo sæmdarleysi og svívirða notandans verði skjalfest, notandanum til eilífðar háðungar.
Við erum betri en þetta. Við erum Íslendingar. Ykkur reglubrjóta og óþjóðalýð spyr ég:
Ísland, farsælda frón og hagsælda hrímhvíta móðir. Hvar er þín fornaldarfrægð, frelsið og manndáðin best?
r/klakinn • u/Oktopuzzy • 2d ago
Nú eru góð ráð dýr.
Ég er með verkefni í gangi þar sem ég smíða vinnuborð, trönur og fleira fyrir fötluð börn og gef þeim. Ég á eina Skrúfvél og sög sem ég nota í þetta (og leyfi þeim stundum að nota!) velin mín er Milwaukee m18 með einni rafhlöðu og hleðslutækið gaf sig. Ég á ekki fyrir nýju 20.000kr hleðslutæki. Er einhver hér sem gæti átt eitt slíkt og er til í að láta frá sér á sanngjörnu verði?
Edit: ef einhver vill leggja málinu líð á einhvern hátt er ég gríðarlegur þakklátur.’ Allt smiðatengt hjálpar þar sem þetta kemur allt úr eigin buddu og ég er
Duglegur að gera krökkum verkfæri sem þau ráða við.
r/klakinn • u/No-Movie8241 • 2d ago
Veit einhver hvar hægt er að horfa á Regínu á íslensku?
r/klakinn • u/AlexanderBeck • 6d ago
Óreyndir streymarar fara í mótorhjólareisu á Íslandi, aka blint að næturlagi og stoppa á miðjum vegi.
r/klakinn • u/Defiant-Owl-7935 • 9d ago
Fyrstu tölur og viðbrögð .
Blablabla. Crosspóstaði bara og þessi kona nennir ekki meira ves. Verðlaun á besta jarmið.
r/klakinn • u/dingopictures05 • 9d ago
Hefur einnhver vhs spólur at selja?
Hæ, íslenska er ekki fýrsta túngamal mitt afsakið fyrir stafsetningsvilur. Ég er ein sænskur straukur með ahugi fyrir íslensk media. Allvega, ég og nokkra andri verk af ein siðum til at staðfesta íslenska leikaralistar svo all kan lesa þau og sem leik sem i myndir. Allir spólur ég kann finna með leikaralistar er mjög þegið. Ég hópur at einhver kann bjarka mig. Bestum kvædjum frá David.
r/klakinn • u/Flashy_Isopod8253 • 10d ago
Hamfarir - Gunnar Jökull
Veit einhver hvar er hægt að finna plötuna Hamfarir eftir Gunnar Jökul? Eina sem ég hef ég hef fundið er hljodsafn.is og það sýnir bara stuttar klippur. Hvar er hægt að finna þessa plötu?
r/klakinn • u/Gervill • 9d ago
Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón
Greinilega ólöglegt að gera hlaðvarp (podcast) fyrir Íslending að nota frjálslega sem er notað af hverdagsfólki hvar sem er þessa dagana án leyfis ríkisstjórnar nokkurn tímann, ekkert málfrelsi er raunin.
r/klakinn • u/hremmingar • 11d ago
Tökur hafnar á endurgerð “Tommi Kungfu” eftir fóstbræður
galleryr/klakinn • u/lingo212 • 12d ago
Rip í friði Gotti.ai
Afþví að
https://www.visir.is/g/20262926013d/nyr-og-umdeildur-gotti-tekinn-ur-loftinu
Það er okkur mikilvægt að koma því á framfæri að efnið með Gotta er ekki unnið af gervigreind í stað skapandi fagfólks. Að baki því stendur þverfaglegur hópur hugmyndasmiða, hönnuða og textahöfunda. Gervigreind er framleiðslutæki og er nýtt samhliða þeirri tækni sem við höfum þekkt til um árabil. Mannleg hugmyndavinna og sköpun er áfram grunnurinn að öllu efni. /s?
r/klakinn • u/Suitable_Pay9436 • 11d ago
Innreið gervigreindar 👾 Ai auglýsing herrafatalagerinn
Veit einhver hér hvar ég get fundið ai auglýsinguna hjá Herrafatalagernum? Ég fór í bíó á Akureyri og í auglýsingunum á undan kom þessi bagalega auglýsing af einhverjum manni í jakkafötum í dauðaþögn að hlæja og leika sér í sandkassa, og klárlega tölvugert með ai.
Veit einhver hvaða auglýsingu ég er að tala um? Þetta var líklegast topp 3 verstu hlutum sem ég hef á ævinni séð og mig langar að sýna vinum mínum hana.
r/klakinn • u/1icedman • 12d ago
Ábyrgðarbréf 📨 Hvíl í friði
En í alvöru þó, þín verður saknað 🙏
r/klakinn • u/SimonTerry22 • 13d ago
Dolly og Steinn Ármann
Þú fékkst góðan félagsskap upp á himnum, hvíl í friði prins.
r/klakinn • u/ungababunga • 14d ago
Þegar ég sé fiskiflugur eftir að hafa rekist á lúsmý í fyrsta sinn
r/klakinn • u/SimonTerry22 • 16d ago
Steinn Ármann er látinn
WTF!!!? 😭😭
Mér þótti alltaf Steinn Ármann vera sá lang fyndnasti og hann hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi. Þarna leið mér eins og ég hefði verið kýldur í magann þegar ég las þessa frétt.
r/klakinn • u/SnooSketches9174 • 15d ago
fjólubláar kartöflur
getur einhver bent mer a hvar fjolublaar kartöflur eru til sölu
r/klakinn • u/Shjellinn • 16d ago
Hvað fannst ykkur um frammistöðu Snorra Mássonar í House of the Dragon?
Talsvert stærra hlutverk en Jóhannes Haukur var með í Game of Thrones en fær samt ekki sömu umfjöllun.